- Auglýsing -
Sannkallað ruslatunnustríð er á milli nágranna á Seljarnarnesi. Hanna Kristín Skaftadóttir, móðir á Seltjarnarnesi, greindi frá nágrannaerjunum á Fésbókarsíðu sinni og birti myndskeið þar sem Steingrímur Sævarr Ólafsson almannatengill sést raða ruslatunnum fyrir bifreið Hönnu Kristínar og fjölskyldu hennar. Í færslunni skrifar hún:
„Síðastliðna 6 mánuði höfum ég og börnin mín þurft að þola ónæði og árásir með orðum og gjörðum frá kærasta nágrannakonu minnar. Steininn tók úr í morgun þegar ég náði myndbandi af honum að loka bíl okkar fjölskyldunnar inni með ruslatunnum.“
„Hefur öskrað á mig og hótað mér“
Hanna Kristín lýsir ógnandi hegðun Steingríms og fer meðal annars ofan í saumana á hvernig hann hafi vísvitandi kveikt eld og fyllt íbúð hennar af reyk með þeim afleiðingum að dóttir Hönnu mátti leita læknisaðstoðar:
„Hann Steingrimur Sævarr Ólafsson almannatengill hefur öskrað á mig, hótað mér og þar með hrætt mig og börnin mín. Ekki nóg með að hann reyni ítrekað að loka bílinn minn inn í innkeyrslu minni heldur hefur hann einnig kveikt opinn eld á sameign í þeim einum tilgangi að reykfylla fasteign mína með þeim afleiðingum að dóttir mín endaði í læknishöndum með alvarlegan astma.“
Tók afstöðu í hatrömmum málaferlum
Hanna Kristín útskýrir jafnframt hvað liggi að baki þessari styrjöld sem nú geysar í litlu fjölbýli á Seltjarnarnesi:
„Allt er þetta tilkomið því ég studdi við bak Boga Hallgrímssonar í hatrömumm málaferlum sem nágrannakonan stóð í við hann. Þetta fæ ég að launum.
Ég hef nú hringt á lögreglu því nú er svo komið að málum linni og fólk sjái hvað sé í gangi.“
Að lokum óskar hún fylgjendum sínum gleðilegra jóla frá sér og börnunum.
Mannlíf leitaði viðbragða hjá Steingrími Sævarri Ólafssyni vegna málsins og vildi hann ekki ræða málið opinberalega.