Snjó hefur kyngt niður á Austurlandi síðustu sólarhringa og virðist ekkert lát vera á. Blaðamaður Mannlífs er staddur í Fellabæ á Héraði og tók nokkrar vetrarljósmyndir.
Stormur hófst víða á landinu á aðfangadag Jóla og slotaði ekki fyrr en í gærkvöld, alla vega á Héraðinu. Ekki var komist í að ryðja vegi fyrr en í dag en víða sitja bílar fastir og hafa margir þurft að vaða snjó upp að hnjám til að komast leiða sinna.
Ástandið í Fellabæ er allt annað í dag enda minnst þrjú ruðningstæki á ferðinni. Blaðamaður Mannlífs er staddur í hinum fagra bæ og tók nokkrar ljósmyndir í dag sem hægt er að sjá hér fyrir neðan.