Nú er um að gera að nýta tækifærið í allri þessari inniveru og dytta að heimilinu. Margir hafa nýtt samkomubannið til góðra verka, eins og að þrífa, taka til, já, og mála en þeim sem vilja vera með puttann á púlsinum í þeim efnum er bent á að heitasti liturinn um þessar mundir er klassískur blár.
Litur ársins samkvæmt litafyrirtækinu Pantone er klassískur blár, en hann verður áberandi á árinu bæði í innanhússhönnun, fatnaði og farða en það hefur sýnt sig að sterk tenging er á milli tísku og innanhússhönnunar.
Samkvæmt vefsíðu Pantone er þessi litur meðal annars sagður vera djúpur, nútímalegur, glæsilegur og einfaldur í senn, auk þess sem hann á að vera tákn fyrir sjálfstraust, áræðni og tryggð. Þá þykir hann falla vel að öðrum litatónum og getur gjörbreytt hverju rými.
Myndir / Frá framleiðendum