Ofurspenntur íbúi í mðbænum klæddi sig úr að ofan og klifraði upp á bílskúrsþak. Þar stóð hann á öskrinu þegar lögreglan mætti á svæðið. Hann var hinn samvinnuþýðasti og útskýrði sitt mál með þeim hjætti að hann hefði þurft að losa um innri spennu.
Á öðrum stað í miðbænum var lögreglu tilkynnt um einstakling sem svaf í snjóskafli. Lögreglan vakti hann. Við athugun kom í ljós að hann var ölvaður. Honum var forðað úr frostinu og honum ekið til síns heima.
Þjófur var gripinn í verslun í austurborginni. Hann reyndist hafa stolið samloku, 10 glösum af kardimommudropum og einni dós af Coca cola. Ekki er getið um það ík dagbók lögreglu hver örlög kardimommuþjófsins urðu.
Nágrannastríð skall á vegna snjómoksturs. Stríðsaðilar kepptust um að moka snó á milli garða sinna. Lögreglan var kölluð til og kvað um þann salómonsdóm á vettvangi átakanna að þeir ættu að leysa málin án frekari aðkomu lögreglu.