Yfirtaka Ísfélagsins í Vestmannaeyjum á Ramma á Siglufirði hefur vakið mikla athygli. Með þessu þenur Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi félagsins, enn út veldi sitt og nær forræði yfir veiðiheimldum og Siglfirðinga. En það vekur athygli að fram á sjónarsviðið í ættarveldinu í Eyjum stígur fram sonur Guðbjargar, erfðaprinsinn Einar Sigurðsson, sem ber nafn afa síns, Einars ríka Sigurðssonar. Svo virðist sem hann sé heilinn að baki sameiningunni ásamt Ólafi Marteinssyni, eins aðaleiganda Ramma, sem nú krýpur við fótskör Vesmannaeyinganna. Einar hefur fram að þessu staðið í skugga móður sinnar.
Lítið hafðí áður kveðið að Einari yngri í viðskiptum. Hann starfaði um tíma sem blaðamaður á DV í skjóli Óla Björns Kárasonar ritstjóra og skrifaði þá gjarnan um mál sem snúa að neytendum. Seinna eignaðist Óli Björn DV með stuðningi Eyjafjölskyldu Einars og blaðið endaði í gjaldþroti …