- Auglýsing -
Danska hönnunarhúsið HAY kynnti nýlega ný handofin ljós eftir serbneska hönnuðinn Ana Kraš sem er menntaður húsgagna- og innanhússarkitekt frá Belgrad.
Árið 2013 fluttist hún til New York þar sem hún starfaði við vöruhönnun og ljósmyndun en ásamt því öðlaðist hún reynslu í fatahönnun sem hún hefur nýtt sér við hönnun sína.
Ljósin bera heitið Bonbon og er meginhugmyndin sú að engin tvö ljós eru eins og möguleikarnir á útfærslu eru óteljandi hvað varðar efni og liti. Lamparnir geta nýst sem loftljós, borð- og gólflampar.