Óskað var aðstoðar lögreglu í spilaleikjasal í miðborginni vegna viðskiptavinar sem lognaðist út af vegna ölvunar. Lögreglu tókst að vekja spilamanninn og koma honum í annað húsaskjól.
Í Garðabæ var drukkinn ökumaður á ferli og hafnaði á ljósastaur. Hann var skömmu síðar stöðvaður og handtekinn vegna ástands síns. Hann var í framhaldinu læstur inni í fangaklefa og þarf að svara til saka með morgninum.
Í Hafnarfirði missti einstaklingur fótanna í hálku. Slysið var alvarlegt og kallað eftir sjúkrabíl sem flutti hinn slasaða á bráðamóttöku. Annar gerði sér að leik í Hafnarfirði að trufla umferð og stofna sjálfum sér og öðrum í háska. Sá reyndist vera ofurölvi og kom lögreglan honum heim til sín.
Strætóbílstjóri kallaði eftir aðstoð í Mjóddinni vegna ungra drengja sem voru til vandræða í vagninum hjá honum. Drengjunum vísað út af lögreglumönnum.
Tilkynnt var um umferðaróhapp í úthverfi Reykjavíkur þar sem bifreið var ekið á umferðarljós. Ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Ökumaður bifreiðar hefur samband við lögreglu og tilkynnir að hann hafi ekið út af í hverfi 270 og óskar aðstoðar lögreglu. Þegar lögregla kom á vettvang vaknaði grunur um að ökumaður væri undir áhrifum fíkniefna og var hann handtekinn, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og er vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.