- Auglýsing -
Áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson var handtekinn fyrr í kvöld á Húsavík af sérsveit lögreglunnar. DV greinir frá þessu.
Kristján Einar, gjarnan kallaður Kleini, er sagður hafa verið handtekinn vegna gruns um aðild að alvarlegri líkamsárás á Akureyri um áramótin.
Honum virðist hafa verið sleppt stuttu eftir handtökuna en í samtali við DV segist hann alsaklaus.
Handtakan á Húsavík tók þó nokkurn tíma en sjónarvottar segja að aðgerðin hafi tekið rúmlega 40 mínútur og var hluta Mararbrautar lokað á meðan.