Rithöfundurinn og sagnaþulurinn Illugi Jökulsson vakti gríðarlega athygli eftir áramótin þegar hann lýsti yfir stríði á hendur offitudraugnum. Hann reifaði í nokkuð ítarlegu máli að hann væri alltof þungur með tilheyrandi álagi á hjarta, stoðferfi og ekki síst hnéin. „Ég ætla því að losa mig við 50 kíló næsta árið og verða sem næst 83 kílóum um næstu áramót. Það þýðir 1 kíló á viku, sem ætti að vera hægt,“ skrifaði hann á Facebook og uppskar gríðarleg viðbrögð í formi velþóknunartákna og ummmæla.
Fjöldi fólks hefur ráðlagt honum varðandi framhaldið og hvatt hann með samstöðu. Þá eru einhverjir sem hafa gerst fylgjendur hans í heilsuátakinu og ætla að léttast með honum. Þjóðin fylgist spennt með átakun og margir bíða frétta af gangi mála hjá Illuga …