Baráttukonan og hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak virðist ekki vinsæl í Vestmannaeyjum. Í það minnsta var nafn hennar málað stórum stöfum á skessu á þrettándanum í gær. Þetta má sjá á myndbandi hér fyrir neðan.
Í þessu sama myndbandi má sjá aðra skessu, en sú var í raun nokkuð rasíska skrípamynd af araba. Skessurnar virðast hafa verið hluti af Þrettándagleði ÍBV en viðburðurinn var kynntur svo: „Flugeldasýning, blysför, álfabrenna, jólasveinar, tröll, tónlist og margt fleira. Gangan hefst við Hánna og gengið verður upp Illugagötu, niður Höfðaveg og að malarvellinum þar sem hinar ýmsu kynjaverur heilsa upp á gesti.“
Ekki allir í Vestmannaeyjum höfðu húmor fyrir þessu. Einn í það minnsta sagði við Mannlíf: „Það er verið að skrímslavæða femínisma, baráttu gegn ofbeldi og láta börn taka þátt í því og rasisma.“