Það er óhætt að segja að uppátæki manns nokkurs í Vesturbænum hafi fallið í kramið hjá nágrönnum hans. Maðurinn beið ekki boðanna, heldur fór og mokaði snjó af gangbrautinni yfir Ánanaust.
Það náðist á mynd sem sjá má hér fyrir ofan en henni deildi Jóhannes Tryggvason innan Facebook-hóps Vesturbæinga og skrifaði: „Ég vil tilnefna sem vesturbæing vikunnar manninn sem fór sjálfur með skóflur að moka snjó af gangbrautinni yfir Ánanaust í dag. Vel gert, hver sem þú ert.“
Sjö hundruð manns hafa lækað færsluna á stuttum tíma svo það er ljóst að margir eru sammála Jóhannesi.