Áhyggjufullur nágranni setti sig í samband við lögreglu í gærkvöldi og sagðist vera hræddur um að það væri kannabisræktun í fjölbýlishúsinu þar sem hann var búsettur. Lögregla mætti á vettvang og kannaði málið en engin ræktun var í húsinu.
Karlmaður var handtekinn í miðbænum í gær eftir að hann hafði tekið upp á því að hoppa á þaki bifreiðar. Maðurinn tók ekki vel í handtökuna og reyndi að bíta laganna verði en auk þess hótaði hann þeim lífláti.
Síðar um kvöldið varð lögregla vör við ökumann bifreiðar aka yfir á rauðu ljósi. Viðkomandi var veitt eftirför en aðilinn virti ekki stöðvunarmerki lögreglu. Þá tók hann upp á því að lokum að stöðva bifreiðina og flýja á tveimur jafnfjótum. Lögregla hljóp manninn uppi en þá kom í ljós að maðurinn var bæði undir áhrifum vímuefna auk þess að vera eftirlýstur.