Knattspyrnuliðið Kórdrengir eru nú búnir að senda inn þátttökutilkynningu til KSÍ; ætla sér að vera með á næsta tímabili.
Þetta staðfestir Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, í samtali við Fótbolta.net.
Þar segir einnig að heimavöllur Kórdrengja næsta sumar verði sjálfur Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði; en fram kom um nýliðna helgi að FH væri í viðræðum um að taka yfir Kórdrengi, en þeir spila í Lengjudeildinni.
Kórdrengir hafa nú verið án þjálfara og heimavallar í nokkra mánuði; auk þess sem fjölmargir lykilmenn eru horfnir á braut.
Framtíð Kórdrengja hefur því verið í mikilli óvissa.
Talið er líklegt að FH ætli sér að nýta Kórdrengi undir yngri leikmenn sína; að þeir fái þá reynslu í næst efstu deild.