Þórður Snær Júlíusson afhjúpar ósmekkleg mistök Viðskiptablaðsins í nýrri Twitter-færslu og kallar starfsmenn þar „litla kalla“.
Annar tveggja ritstjóra nýja fréttamiðilsins Heimildin, Þórður Snær Júlíusson, afhjúpðar afar ósmekkleg mistök hjá Viðskiptablaðinu í nýlegri Twitter-færslu. Birtir hann tvö skjáskot, annað er af deildingu á frétt Viðskiptablaðsins á Facebook en hin sýnir forsíðu fréttarinnar. Af myndunum að dæma virðist Viðskiptablaðið byrjað á afar ósmekklegri fyrirsögn en svo breytt því en deilt fréttinni áður en búið var að laga fyrirsögnina. Fréttin var um Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar og vonarstjörnu flokksins en gamla fyrirsögnin var „ótímabært sáðlát“ en endurgerð fyrirsögn „ótímabær fögnuður“. Kallar Þórður Snær starfsmenn Viðskiptablaðsins „litla kalla“ í færslu sinni en Trausti Hafliðason er ritstjóri blaðsins.
Færslan hljóðar eftirfarandi:
„Litlir kallar að gera það sem litlir kallar gera. Skíta upp á bak og vona að skíturinn hverfi vegna þess að þeir láta eins og sé ekki þarna. En lyktina finna allir. Ágætt að þessi vettvangur minnstu nafnlausu kallanna opinberi sig aftur og aftur og aftur fyrir það sem hann er.“
Litlir kallar að gera það sem litlir kallar gera. Skíta upp á bak og vona að skíturinn hverfi vegna þess að þeir láta eins og sé ekki þarna. En lyktina finna allir. Ágætt að þessi vettvangur minnstu nafnlausu kallanna opinberi sig aftur og aftur og aftur fyrir það sem hann er. pic.twitter.com/UY8ZdymwAH
— Þórður Snær Júlíusson (@thordursnaer) January 16, 2023