Nú er það ljóst að meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar hefur ákveðið að falla frá fyrirhuguðu útgöngubanni katta að næturlagi; samþykkt hafði verið að reglurnar myndu taka gildi um áramót, en af því varð ekki og nánar átti að ræða málið á bæjarstjórnarfundi.
Á sínum tíma hafði verið samþykkt að banna lausagöngu katta í bænum frá 1. janúar 2025, en því var breytt í bann að næturlagi.
Gamla handboltahetjan úr KA, Heimir Örn Árnason, er forseti bæjarstjórnar; hann segir að málið hafi hins vegar verið látið falla niður:
„Það verður bara ekki tekið meira fyrir og reglurnar munu ekkert breytast. Þetta er bara komið ofan í skúffu, þetta mál, í bili,“ sagði Heimir Örn á Morgunvaktinni á Rás 1.