Sósíalistinn og vefhönnuðurinn Andri Sigurðsson er grjótharður stuðningsmaður Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar. Andri komst í fréttir eftir að hann fékk verkefni við gerð vefsíðu hjá Eflingu og uppskar litlar 20 milljónir króna fyrir sem einhverjum þykir vera há upphæð. Aðrir benda á að það kosti sitt að endurnýja heimasíðu fyrir láglaunafólkið.
Andri lenti í harkalegum útistöðum við Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambandsins, á Facebook á dögunum. Hann sakaði Vilhjálm um árásir á verkafólk með gerð nýja kjarasamningsins og kallaði þann gjörning svik við verkafólk. „Nei Andri minn, ég er ekki á launum hjá SA en ert þú ekki búinn að vera „aðeins“ á launum hjá Eflingu?“ spurði Vilhjálmur og krafði Andra um skýringar á greiðslunni. Þá var sósíalistanum nóg boðið. “Ég skil, þú ert alveg farinn,” svaraði hann …