Hluti af útgjöldum heimilisins fer í að klippa fjölskyldumeðlimi. Það getur munað allt að hundrað prósent á einstakri klippingu á dýrustu hárgreiðslustofunni og þeirri ódýrustu. Mannlíf kannaði verð á 14 hárgreiðslustofum þar sem töluverður verðmunur kom í ljós. Stofurnar voru teknar af handahófi inn á Noona appinu en þó þurfti að hringja á einstaka staði til að fá betri útskýringar.
Mannlíf tók dæmi með fimm manna fjölskyldu sem fer í klippingu á tveggja mánaða fresti eða alls sex sinnum á ári. Fjölskyldan saman stendur af karli og konu og þremur börnum sem eru þriggja, átta og tólf ára. Dýrast er hjá Brúsk hárgreiðslustofu eða 222.600 krónur á ári og ódýrast hjá Draumahári 132.000 krónur á ári. Af þessu má sjá að það er hægt að spara umtalsverðar fjárhæðir með því að bera saman verð
Það skal tekið fram að hárþvottur er ekki innifalinn í verðinu og ekki ný lína í dömuklippingu.
Sjá verðkönnun hér að neðan: