Sjónvarpskonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir birti skemmtilegar ljósmyndir af sér á Instagram í gær. Á þeim skarta hún glænýrri hárgreiðslu.
Má segja að Ragnhildur Steinunn sé nær óþekkjanleg á myndunum enda hárgreiðslan allt öðruvísi en landsmenn eru vanir að sjá hana með. Er hún þekkt fyrir slétt og fallegt hár en á nýju myndunum er hún með fallegar krullur. Við færsluna skrifaði hún: „Hár-flipp fyrir lengra komna ⚡️📸 @baldurkristjans“.
Ekki er annað hægt að segja en að krullurnar fari henni afar vel en í Story hjá henni bíður hún fylgjendum sínum að kjósa um þær með því að velja annað hvort „Love it!“ eða „Alls ekki!“ en ekki er komin niðurstaða enn í þeirri atkvæðagreiðslu.
Mannlíf mun fylgjast með og uppfæra fréttina. Það er lygi.
Hér má sjá herlegheitin: