Steinunn Árnadóttir, hestakona og organisti segir hrossinn úr Borgarnesi enn illa haldin.
Hin skelegga hestakona, Steinunn Árnadóttir hefur verið ötul baráttukona gegn dýraníð í Borgarnesi undanfarna mánuði en hún vakti fyrst allra athygli á slæmri meðferð á hrossum og nautgripum á Nýjabæ í Bæjarsveit í Borgarnesi. Þótti Matvælastofnun draga lappirnar í málinu lengst af eftir að hafa fengið mýmargar ábendingar um málið. Að lokum fór svo að bóndinn var sviptur vörslu á hátt í 200 nautgripum en eitt folald var fellt á staðnum á meðan 12 hross voru send í sláturhús. Aðrir ábúendur á bænum fengu þó að halda restinni af hrossunum.
Sjá einnig: Steinunn um aðkomu Mast að hrossaníðsmálinu:„Gera vesalingana nógu horaða. Hægt að drepa á staðnum“
Nýlega skrifaði Steinunn færslu á Facebook þar sem hún segir ill meðferð á hrossunum enn við lýði á bænum. Segir hún að hrossinn fái ónýtt hey til átu.
„Framhaldssaga hrossanna úr Borgarnesi:
Það á bara eftir að hengja orðu á ykkur fyrir fullkomna vanhæfni!“
Steinunn er spurði í athugasemd við færsluna hvernig hún viti að heyið sé skemmt. „þú mætir á staðinn og finnur pestina sem er af heyinu. Eins og rúllan sé skítahaugur!“ svaraði Steinunn.