Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra án staðsetningar, er í forsíðuviðtali við helgarblað Moggans þar sem hún fjallar um líf sitt og starf sem stjórnmálamaður. Þar lýsir hún þeim furðuspurningum sem hún fær um einkalíf sitt, sem hefur verið á milli tanna fólks undanfarin ár. Einhverjir hafa áhyggjur af því að hún sé ekki lögst í barneignir, 32 ára, með líkamsklukkuna tifandi.
„En kannski einmitt vegna þess að ég er ung kona fæ ég spurningar frá fjölmiðlafólki sem karlar fengju ekki. Ég var til dæmis í viðtali um daginn og þegar viðtalinu lauk spurði fréttamaðurinn hvort ég ætlaði ekki að fara að verða ólétt. Ég var svo hissa að ég kom varla upp orði,“ segir hún í viðtalinu og kveðst afþakka ráðgjöf eða spurningar í þessa veru …