Miklar deilur eru um miðlunartillögu Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara í deilu Eflingar og SA.
Þau Aðalsteinn Leifsson og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar eru náskyld; annar og þriðji liður, en það var skúbbrefurinn Eiríkur Jónsson sem sagði fyrst frá.
Eiríkur hefur það eftir blaðamanninum góðkunna, Sigurði Boga Sævarssyni:
„Þetta var fljótfundið á netinu út frá vísbendingum,” sagði Sigurður Bogi blaðamaður við Eirík og benti á þetta:
Árni Jónsson alþingismaður frá Múla (1891-1947) og Ragnheiður Jónsdóttir (1892-1956) Valgerður Árnadóttir (1918-1999) Margrét Valgerðardóttir, sjúkraliði í Reykjavík, (1943) Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari (f. 1967) – Árni Jónsson frá Múla (1891-1947) og Ragnheiður Jónsdóttir (1892-1956) Jón Múli Árnason útvarpsþulur (1921-2002) Sólveig Anna Jónsdóttir (f 1975)