Ögmundur Jónasson segir í viðtali í hlaðvarpinu Ein pæling að það hafi alltaf verið sín skoðun að vinstri menn ættu aldrei að starfa með Sjálfstæðisflokknum. Hann segir að það hlyti alltaf að verða þannig, ef sjálfstæðismenn og vinstri græn færu saman í stjórn, að þá væri annar hvor flokkurinn að svíkja sína kjósendur.
Aðspurður hvort Vinstri Grænir eða Sjálfstæðisflokkurinn hafi svikið sína kjósendur segir hann að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið miklu meira af sínu fram í núverandi stjórnarsamstarfi. Áður hefðu vinstrimenn barist fyrir jöfnuði og að samfélagið sem væri skipulagt út frá þeirri grunnhugsun. Einnig var hægt að ganga út frá því að vinstrimenn væru andvígir hernaðarhyggju og hernaðarbandalögum. Nú væru menn aftur á móti að tala um að einkavæða vegina, hleypa fjárplógsmönnum í vasa almennings á þjóðveginum, hlaupa í fangið á NATO-foringjum og flytja hergögn á átakasvæði. Grunnprinsipin séu einfaldlega horfin. Hernaðarhyggjan, einkavæðingin og markaðshyggjan sé búin að taka yfir.
Í umhverfismálum segir Ögmundur Sjálfstæðisflokkinn einnig ráða ríkjum, með umhverfisráðherra sem hefur aldrei tekið þátt í þeim málaflokki að undanskyldu því að mögulega gefa öndunum brauð. Nú ætti hins vegar að virkja hverja sprænu og þetta væri gert í skjóli og með þátttöku Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.
„Það er annað með þessi umhverfismál. Sko Sjálfstæðismenn, Umhverfisráðherra, hann hefur ekki sinnt umhverfismálum mikið meira en að gefa öndunum svona í gegnum tíðina.“
Ögmundur segist í raun hafa miklar áhyggjur af vinstrimönnum á Íslandi, sama um hvaða flokk væri að ræða. Það væri ekki hægt að mynda vinstristjórn á Alþingi vegna þess að þar sé enga vinstrimenn að finna. Með þessu áframhaldi væru stjórnmálin öll færð yfir á „hægra sullið“ eins og hann kallar það.
ÞH: „Í sambandi við vinstrið, útaf því þú ræðir það líka í bókinni þinni, þú hefur áhyggjur af vinstrinu með tilliti til þess að vera misviljug til þess að eiga samræður og umræður um málefni. Hvar finnst þér vinstrið standa í dag? Með tilliti til samræðna, umræðna og vilja til að sjá skoðanahliðar annarra?“
ÖG: „Já, já, já heldur betur. Heldur betur. Og þá svíkur annar hvor. Og það sem var, þú gast gengið út frá því að vinstrimennirnir vildu jafnaðarsamfélag og vildu skipuleggja samfélagið á þeim grunni. Þú gast líka gengið út frá því að þeir væru andvígir hernaðarbandalagi, og hernarhyggju. Þú gast gengið út frá því að gagnaðilinn væri á öndverðu meiði í báðum málum. Og nú eru þessi grunnprinsip horfin af vinstrivængnum. Þau eru horfin. Þau eru ekki þarna. Það er verið að tala um að einkavæða vegina. Það er verið að tala um að hleypa fjármagnsmönnum ofan í vasana á okkur á þjóðveginum og allstaðar. Og það er farið að selja andrúmsloftið hérna. Og bíddu, hvað eiginlega endar þetta? Menn eru hlaupandi upp í hálsinn á NATO foringjum og eru harðdrægustu NATO-sinnar sem finnast, flytja hergögn á stríðsvettvang. Þetta er farið.“