Erlendur ferðamaður hafði samband við lögreglu í gærkvöldi og tilkynnti bæði um þjófnað og fjársvik. Ferðamaðurinn gat fundið út hvar meintur þjófur var með því að fylgjast með færslum á visakorti hans. Rétt áður en lögreglu bar að garði ók þjófurinn á brott en lögregla telur sig vita hver maðurinn er.
Athugull vegfarandi hafði samband við lögreglu þegar hann sá mann brjótast inn í bíl. Þegar lögregla mætti á staðinn kom í ljós að maðurinn var enginn innbrotsþjófur heldur eigandi bifreiðarinnar. Hann hafði týnt lyklunum af bílnum og þurfti því að komast inn í hana eftir óhefðbundnum leiðum.
Á miðnætti tilkynnti íbúi á höfuðborgarsvæðinu um innbrot. Þegar húsráðandi kom heim sá hann að brotist hafði verið inn og verðmætum stolið. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu. Þá sinnti lögregla umferðareftirliti og stöðvaði meðal annars ökumann sem hafði stungið af frá vettvangi eftir árekstur.