Hús sem stendur við Kotvog í Höfnum rifnaði í sundur í ofsaveðrinu rétt fyrir hádegi í dag. Á myndinni hér fyrir ofan má sjá aðstæður við húsið síðdegis í dag. Þarna er um að ræða foirnfrægt stórbýli sem hefur verið í eyði um árabil.
Vísir greindi frá því fyrr í dag að björgunarsveitin Kili hafi sent mannnskap á vettvang til að tryggja þakið sem fauk af sumarhúsi við Meðalfellsvatn.
„Það er verið að tryggja þak sem farið hefur og skemmt einhver þrjú eða fjögur hús í grenndinni og þeir eru nýlentir á svæðinu. Þetta er einhver bústaður sem er í byggingu og þakið virðist hafa sprungið upp,“ var haft eftir Brynjari Má Bjarnasyni hjá björgunarsveitinni.