Brynjar Níelsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að hringferð Sjálfstæðisflokksins hafi ekki gengið sérstaklega vel í þetta skiptið. Á Facebook segir hann að fárviðri hafi valdið talsveðri mæðu fyrir þingmenn flokksins.
„Þegar það er appelsínugul viðvörun er ekki sniðugt að fara í hringferð um landið. Í þingflokki sjálfstæðismanna eru nokkrir í fjaðurvikt. Diljá Mist mun vera 25 kíló í öllum fötum og var því ekki hægt að hleypa henni úr rútunni nema í beisli. Hún var heppin að með í för var yfirmaður almannavarna og einstaklega lipur aðstoðarmaður hans,“ segir Brynjar.
Hann segir Guðlaug Þór Þórðarsson umhverfisráðherra svo veðurhræddan að hann liggur í hnipri aftast í rútunni. „Umhverfisráðherra ætti að vera nokkuð hólpin í fárviðrinu enda bætt töluvert á sig. Hann er hins vegar afskaplega veðurhræddur sem var ekki ábætandi ofan á loftslagskvíðann. Hann liggur því í hnipri aftast í rútunni og neitar að hitta nokkurn mann. Aðrir taka vindinn í fangið og sofa síðan á fundum. Diljá og Gulli hafa lagt til að næsta hringferð verði á Tene. Þar sé betra veður og auk þess meiri líkur á að rekast á kjósendur“