- Auglýsing -
Rappstjörnurnar JóiPé x Króli hafa sent frá sér nýja plötu sem kallast Í miðjum kjarnorkuvetri. Þetta er fimmta plata JóaPé x Króla á stuttum ferli en þeir skutust upp á stjörnuhimininn með laginu B.O.B.A. sem kom út árið 2017.
Platan hefur verið tvö ár í vinnslu og inniheldur hvorki meira né minna en nítján lög. Á plötunni fá þeir til sín marga góða gesti, Auð, GDRN, Bríeti og Kef LAVÍK, Hipsumhaps, Sdóra og Helga A, Alxndru og fleiri.
Upptökustjórn var að mestu í höndum Þormóðs Eiríkssonar og Starra Snæs Valdimarssonar ásamt JóaPé, Auðs og Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar. Styrmir Hauksson annaðist hljóðblöndun.