Smáskífan Daybreak II markar upphaf að fjögurra laga EP-plötu sem tónlistarkonan Iris Arins mun senda frá sér á árinu, en hvert lag verður gefið út á sama formi og Daybreak II. Lagið er pródúserað í samvinnu við listakonuna Skaða Þórðardóttur sem einnig sá um hljóðblöndun.
Það sem tengir lög EP-plötunnar saman er samspil ljóss og myrkurs en efnið er tæklað á mismunandi máta með hverju lagi, og varpar þannig ljósi á ólíkar hliðar sjálfsins; þær langanir og óvissu sem þar er að finna.
Daybreak II fjallar um þrána að dvelja að eilífu í augnablikinu, í draumheimi nætur. Dagrenning er þó óumflýjanleg með öllu sínu sannleiksljósi og hugarheimurinn mun að lokum hverfa á braut.