„Þetta lítur ekki vel út, þetta er spurning um nokkra daga. Fólk er farið að setja eldsneyti í allskonar ílát,“ segir Arnar Jónsson í þjónustuveri Olís um horfurnar varðandi eldsneyti til viðskiptavina. Verkfall er í aðsigi.
Rakel Björg Guðmundsdóttir, markaðs og þjónustustjóri hjá Atlantsolíu, tekur í sama streng. „Okkar áætlanir gera ráð fyrir að eldsneyti á bensínstöðvum okkar dugi fram á föstudag en það fer vissulega eftir kauphegðun viðskiptavina okkar í ljósi aðstæðna,“ segir Rakel í samtali við Mannlíf. „Við höfum vissulega orðið vör við að fólk sé að hamsta eldsneyti á brúsa á okkar stöðvum,“ bætir Rakel við.
Að öllu óbreyttu mun verkfall bílstjóra hjá Olíudreifingu hefjast á hádegi á morgun, miðvikudag. Langar biðraðir hafa myndast við bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Svo virðist sem ákveðin örvænting sé í gangi og sem flestir vilji tryggja sér eldsneyti áður en allt þornar upp með tilheyrandi lömun farartækja.
Flutningabílstjórar sem eru í Eflingu stéttarfélagi, og starfa hjá Olíudreifingu, sjá um alla dreifingu á eldsneyti fyir olíufélögin. Harðar deilur hafa skapast um laun bílstjóra hjá Olíudreifingu þar sem margir telja þá ekki til láglaunastétta þar sem heildarlaun sé allt að 1,2 milljón krónur á mánuði. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hefur sagt það í fjölmiðlum að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, krefjist meiri hækkana fyrir þennan hóp en annað launafólk í landinu.