- Auglýsing -
Á hádegi í dag, miðvikudag, er yfirvofandi verkfall hjá bifreiðastjórum í Eflingu. Eins og Mannlíf greindi frá í gær þá eru margir farnir að hamstra eldsneyti. Mannlíf fékk nokkur góð sparnarðarráð frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda. Ef af verkfalli verður þá er víst eins gott að spara hvern eldsneytisdropa.
- Skipuleggðu útréttingar. Betra er að stoppa nokkrum sinnum í einni ferð en fara margar stuttar ferðir.
- Frá því tekið er af stað eftir ræsingu á að skipta beinskiptum bíl eins fljótt og mögulegt er upp í annan gír og síðan áfram í hærri gíra með léttum inngjöfum.
- Fylgstu með eyðslumæli bíls (ef hann er til staðar) og nýttu til að draga úr eldsneytisnotkun.
- Sé bíll búinn aksturssparnaðarstillingu (ECO) er æskilegt að nota þá stillingu sem mest.
- Aktu með bílvélina á lágum snúningi. Forðastu mikinn snúningshraða í akstri.
- Ef beinskiptur bíll er ekki búið snúningshraðamæli þá er ráðlagt að skipta úr – í 2. gír á 10-15 km/klst hraða, upp í 3. gír á 40 km/klst og 4.- og 5. gír eftir að 60 km/klst hefur verið náð.
- Skipuleggðu aksturinn áður en komið er að gatnamótum og umferðarljósum. Fylgstu með hvort bílar á undan eru að fara að beygja.
- Aktu í takt við flæði umferðarinnar þar sem umferð er mikil. Svigakstur sparar ekki tíma sem neinu nemur, getur skapað hættu og eykur eldsneytiseyðslu.
- Aktu með jöfnum inngjöfum. Æskilegur snúningshraði er um 2000 snúningar á mínútu. Þar sem því er viðkomið á að aka beinskiptum bílum sem mest í efstu gírum.
- Aktu á löglegum hraða.
- Hraðakstur eykur bensíneyðslu og veldur umhverfisspjöllum.
- Taktu af stað með jöfnum hraða, sparaðu óþarfa inngjafir og forðastu snögghemlun.
- Veldu greiðfærar umferðargötur til að draga úr stoppum.
- Ekki forhita bílvél í meira en 30 sekúndur, það veldur óþarfa mengun og eyðslu.
- Stöðvaðu bílvélina ef bíllinn er í hægagangi meira en eina mínútu. Hægagangur í eina mínútu er eldsneytisfrekari en gangsetning.
- Gakktu eða hjólaðu styttri vegalengdir.
- Skipuleggðu samflot í bíl með öðrum þegar hægt er að koma því við.