Á Twitter er fátt annað rætt í dag en gífurlega vanhugsað tíst Sigríðar Andersen, Sjálfstæðiskonu og fyrrverandi innanríkisráðherra. Í gær skrifaði hún að ein ástæða fyrir verðbólgu undan farið væri styrkveiting til Samtakanna 78. Tístið má sjá hér fyrir neðan.
Ástæða verðbólgunnar? Hér er ein:
25 milljóna árlegt framlag + 15 milljóna viðbót + 15 milljóna viðbótarviðbót – til félags úti í bæ. #Ástæðaverðbólgu pic.twitter.com/mexfdkhRrH— Sigríður Á. Andersen (@siggaandersen) February 17, 2023
Fjölmargir hafa gagnrýnt þetta tíst hennar harðlega og hefur Sigríður svarað sumum. Ein kona skrifar: „þetta er eitt mikilvægasta félag landsins og á vel skilið þetta fjármagn.“ Því svarar Sigríður: „Ég er sammál því að frjáls félagasamtök eins og Samtökin78 hafa lagt margt og mikilvægt til og gera það vonandi áfram. Það breytir því ekki að í dag eru ekki til peningar fyrir nýjum útgjöldum. (Þetta er þráður um ríkisfjármál.)“
Á öðrum stað gefur Sigríður í skyn að það sé hatursorðræða að gagnrýna hana. Kona nokkur skrifar: „Ef þú ætlar að nota afkomukvíða almennings til að safna liði í hinsegin hatrið þá er alveg lágmarks kurteisi við vitsmuni pöpulsins að fullyrðingarnar séu nálægt því að vera sannar. Styrkveitingar hins opinbera til manréttindasamtaka valda ekki verðbólgu, Sigríður.“
Því svarar Sigríður: „Útgjöld sem menn eiga ekki fyrir valda verðbólgu, líka útgjöld til hinna bestu mála. Er annars ekki bara upplagt fyrir alla að vera kurteisir og gefa hatursorðræðu frí?“
Svo reynir Sigríður að láta sem hún hafi ekki sakað Samtökin 78 um valda verðbólgu. Baráttukonan Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar: „Einmitt, kennum samtökum sem hafa barist fyrir sjálfsögðum réttindum fólks í áratugi, og veita hinsegin fólk lífsnauðsynlega þjónustu og stuðning – sem ríkið og sveitarfélög gera ekki – um verðbólguna. Finnst þér svona málflutningur þér sæmandi?“
Þessu svarar Sigríður: „Ég veit ekki til þess að nokkur hafi sakað Samtökin 78 um að hafa valdið verðbólgu. Þetta tíst varðar ríkisfjármál og peningamál. Kannski ekki nógu spennandi. Sry. Þú hefur annars verið málefnaleg og skelegg í þínu. Geturðu ekki bara verið það líka í umræðu um ríkisfjármál?“
Tugir hafa svo vitnað í fyrstu færslu Sigríðar og bent á að ríkið hafi greitt mikið hærri upphæðir í margt annað, svo sem í hana sjálfa. Einn skrifar: „Ástæða verðbólgunnar? Hér er ein: 13 til 16 milljóna árlegt framlag + 980 þús viðbót – til fordómafullrar og valdagráðugrar grýlu úti í bæ með hundaflautu og falsfréttablæti.“
Hér fyrir neðan má sjá fleiri dæmi um fólk sem gagnrýnir Sigríði.
Ástæða verðbólgunnar? Hér er ein:
140.952.843 króna kostnaður ríkisins vegna ólöglegrar skipunar @siggaandersen á dómara í landsrétt + ótilteknar skaðabætur til manns útí bæ.https://t.co/wp96K7KUF1 https://t.co/Wytnvd1Szw
— Ingi Bekk (@ingibekk) February 18, 2023
Engin verðlaun fyrir að giska á hver var ráðherra þegar samkomulagið var gert… https://t.co/B3tizvGhzE pic.twitter.com/zxUFrnzVgk
— Sigmundur Halldorsson @[email protected] 💙💛 (@simmix1) February 17, 2023
verðbólgan er náttúrulega hommunum að kenna þetta hef ég alltaf sagt https://t.co/jX7QdskZOx
— Reyn Alpha (@haframjolk) February 17, 2023
Áhugavert að SÁA skuli telja til þennan titlingaskít sem S78 fær frá ríkinu sem ástæðu verðbólgu frekar en t.d. þá rúmu 15 milljarða sem besti vinur hennar Bjarni Ben gaf fyrst og fremst efnamiklu fólki í gegnum "Allir Vinna" átakið 🤔 https://t.co/bizN5uz63C pic.twitter.com/ZIMHuTKqha
— Oddgeir Páll (@oddgeirpall) February 18, 2023