- Auglýsing -
Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, skrifar hjartnæma færslu á Facebook í tilefni konudagsins, sem er í dag. Simmi þakkar mömmu sinni fyrir allt sem hún hefur gert fyrir hann.
Hann skrifar: „Konudagurinn er í dag og óska ég öllum konum til hamingju með daginn. Sérstaklega vil ég þó tileinka daginn Móðir minni. Þó að hún geti ekki móttekið þessi skilaboð í dag, þá vil ég senda þau út í “cosmósið”.
Mamma mín, ég er svo þakklátur fyrir þig, fyrir allt sem þú hefur gert og allt sem þú ert.“