Albumm mælir með þessum viðburðum sem eru framundan.
Loljud og Rauður í Mengi
Raftónlistarkonurnar Loljud og Rauður starfa báðar undir merkjum alþjóðlega samstarfsnetsins Synth Babes. Þær ætla að leiða saman tóna sína í Mengi fimmtudagskvöldið 5. mars og bjóða upp á rafmagnaða kvöldstund fyrir öll skilningarvitin. Fjörið hefst klukkan 21 og eru miðar seldir við innganginn.
Une Misére í Stúdentakjallaranum
Ein framsæknasta sveit landsins Une Misére blæs til heljarinnar tónleika á Stúdentakjallaranum föstudagskvöldið 28. febrúar. Öllu verður til tjaldað og hefjast tónleikarnir klukkan 20. Miðar seldir við innganginn.
Orang Volante í Lucky Records
Raftónlistarmaðurinn Orang Volante, a.k.a. Atli Már Þorvaldsson, kemur fram í plötuversluninni Lucky Records laugardaginn 29. febrúar. Viðburðurinn er haldinn undir merkjum Saturday Mix Club, en fjörið hefst klukkan 14 og er ókeypis inn.