Þann 24. febrúar næstkomandi verða liðnir 365 dagar frá því að stríðið í Úkraínu hófst. Rússar gegn stríði skipuleggja viðburð til þess að sýna samstöðu með Úkraínumönnum, til að minnast fórnarlamba stríðsins og heiðra þá sem koma Úkraínu til varnar. Mótmælin verða haldin 24. febrúar kl. 17:30 við rússneska sendiráðið á Túngötu 24.
Á meðal ræðumanna verður Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. rússneska ljóðskáldið Natasha S. mun flytja ljóð og Rússar og Úkraínumenn segja frá upplifun sinni af stríðinu.
Að lokum verður brenna þar sem kveikt verður í táknmynd rússnesku innrásarinnar. Þetta vísar í forna slavneska hefð þar sem Rússar og Úkraínumenn brenna líkneski til þess að kveðja veturinn. Að þessu sinni er ekki bara verið að kveðja kuldann fyrir utan rússneska sendiráðið heldur einnig stríð og ofbeldi.
Viðburðurinn á Facebook: https://fb.me/e/3kOvWYzTL