Óhefðbundnar baráttuaðferðir Sólveigar Önnu Jónsdóttur í kjaradeilu félagsins vekja furðu. Sólveig hrakyrðir varaformann sinn og ritara og kallar viðsemjendur sína öllum illum nöfnum.
Eflingarfólk gerði hróp að Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra í aðdraganda ríkissjórnarfundar og hann kallaður fasisti. Það er sláandi dæmi um orðræðuna og öfgarnar. Engin rök eru fyrir því að stimpla Bjarna sem slíkan, þótt ýmislegt megi um hann segja.
Í gær mætti Eflingarfólk enn til mótmæla þegar ríkisstjórn kom til fundar. Í þetta sinn er sú krafa uppi að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og stjórn hennar grípi til aðgerða í kjaradeilu sem er á ábyrgð launþega og atvinnurekenda. Verður það ekki skilið öðruvísi en svo að Eflingarfólkið sé að heimta lagasetningu á verkfallið og leysa Sólveigu Önnu úr sjálfheldu sem er ekki á hennar færi að brjóta upp. Nú er sem sagt ákall um að sá úthrópaði Bjarni komi að lausn deilunnar …