Verkfall bílstjóra hjá Olíudreifingu á höfuðborgarsvæðinu hefur nú staðið frá sunnudagskvöldinu 19. febrúar. Áhrifa þess er farið að gæta víða. Mannlíf tók út stöðuna.
Hjá Atlantsolíu er díselolía búin í Hafnarfjarðarhöfn. Atlantsolía á Sprengisandi hefur fengið undanþágu til eldsneytissölu og mun þjónusta þá aðila sem fengið hafa samþykkta undanþágubeiðni frá Eflingu.
Orkustöðvarnar í Skógarhlíð og á Dalvegi er nú aðeins opnar fyrir neyðaraðila. Orkan í Fellsmúla er einnig lokuð fyrir almenning. Sú stöð er eingöngu opin fyrir Hreyfil.
Enn er til eldsneyti hjá Olís og ÓB nema díselolía er uppurin hjá ÓB Fjarðarkaup, ÓB Hólmavík og Básnum í Reykjanesbæ.
N1 stöðvar, sem hafa fengið undanþágu til afgreiðsluneyðarbirgða til undanþáguaðila, þegar þar að kemur eru eftirfarandi:
N1 Stórahjalla- Mán-fös 07:30- 20:00. Laugardagar 09:00 – 20:00 og sun 10:00 – 20.00
N1 Hringbraut – Mán-fim 06:30-00:00, Föstudagar opna 06:30 – sun 00:00, sólarhringsopnun um helgar
N1 Lækjargötu – Mán-fös 06:30-23:30, lau 07:00-23:30, sun 08:00-23:30
Dælur eru opnaðar sérstaklega af starfsmönnum N1 í hverju tilfelli. Ekki er til díselolía hjá N1 á Reykavíkurvegi og Ásvöllum í Hafnarfirði.
Hér má sjá stöðuna á bensínstöðvunum:
Atlantsolía
Orkan
Olís
N1