- Auglýsing -
Sigga Ósk keppandi í seinni undanúrslitum Söngvakeppninar steig örlítið óhefðbundin spor þegar hún sýndi þjóðinni hæfileika sína í steppdansi. Uppstríluð í rauða kjólnum sínum og steppskóm útskýrir hún fyrir áhorfendum: „Þetta er eina tappið sem ég kann og ég er að fara að gera það á minnsta palli í heimi. – Svo verið góð við mig“
Nú stendur yfir seinni undanúrslit Söngvakeppninar í Ríkissjónvarpinu. Keppendur kvöldsins eru:
- Kristín Sesselja með lagið Óbyggðir
- Langi Seli og Skuggarnir með lagið OK
- Silja Rós og Kjalar með lagið Ég styð þína braut
- Úlfar með lagið Betri maður
- Sigga Ósk með lagið Gleyma þér og dansa