Lögregla handtók í gærkvöldi karlmann sem grunaður er um líkamsárás. Geranda var haldið niðri af öðrum manni þar til lögregla kom á vettvang en þaðan lá leið þeirra niður á Hverfisgötu þar sem maðurinn var látinn gista í fangaklefa. Tvær bifreiðar skullu saman í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Sem betur fer urðu engin slys á fólki en önnur bifreiðin var óökufær eftir óhappið.
Síðar um kvöldið var lögregla kölluð út í Breiðholt vegna líkamsárásar. Lögregla fór á vettvang og ræddi við aðila málsins. Þónokkrar tilkynningar bárust lögreglu um fólk í annarlegu ástandi sökum ölvunar eða vímu í gærkvöldi. Auk þess sinnti lögregla hefðbundu umferðareftirliti og stöðvaði þrjá ökumenn. Tveir þeirra höfðu ekið of hratt en sá þriðji var grunaður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá var ekki í öryggisbelti.