Miðlunartillga Ástráðs Haraldssonar í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er talin líkleg til þess að enda átökin sem eru þau heiftúðugustu um áratugaskeið. Bæði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hafa fallist á að setja tillöguna í dóm félagsmanna sinna. Sólveig Anna mun þó, að sögn, hvorki mæla með henni né gegn.
Verði af samningi, sem er líklegt, fær Eflingarfólk sömu kjarabætur og Starfsgreinasambandið með Vilhjálm Birgisson í stafni sótti fyrir sitt félagsfólk og uppskar fordæmingu Sólveigar Önnu fyrir. Eini munurinn er sá að þernur á hótelum færast upp um launaflokk. Þar með blasir ósigur hennar við. Eftir allt stríðið, óþægindin og vopnaglamrið stendur Sólveig Anna þá uppi með það sama og allir hinir og láglaunafólk hennar situr eftir. Eftir stendur að hún segist hafa breytt Eflingu í baráttusamtök. Byltingin er væntanlega handan við hornið …