Klukkan tíu mínútur í ellefu í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um umferðaróhapp í miðbænum. Þar hafði bifreið runnið úrbílastæði við hús í austurborginni með þeim afleiðingum að hún hafnaði á annarri bifreið á svæðinu. Ökutækin skemmdust nokkuð en ekki hafði verið nægilega vel gengið frá ökutækinu þegar því var lagt. Rúmum hálftíma síðar var karlmaður handtekinn í Laugardagl en sá er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum vímuefna. Var hann látinn laus að lokinni blóðsýnatöku. Að öðru leyti var nóttin róleg ef marka má dagbók lögreglu að þessu sinni.