- Auglýsing -
Sunnudaginn 20. október mun indie-popp konseptið Hipsumhaps stíga á svið í Bæjarbíói í Hafnarfirði í tilefni af útgáfu plötunnar Best gleymdu leyndarmálin.
Plötunni hefur verið vel tekið af gagnrýnendum og nú á að fagna með því að spila plötuna í heild sinni í fyrsta sinn á sviði. Einvalalið hljóðfæraleikara kemur fram og það verður öllu tjaldað til í því skyni að gera kvöldið sem eftirminnilegast. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.
Hægt er að nálgast miða á www.tix.is.