Dwayne Johnsons var heldur betur hissa þegar hann kom heim eftir viðskiptaferð en þar biðu hans tveir glænýir fjölskyldumeðlimir.
Ein skærasta stjarna Hollywood, Dwayne „The Rock“ Johnson birti skemmtilega færslu á Instagram í morgun, sem vakið hefur kátínu yfir milljón fylgjenda kappans. Svo virðist sem tveir óvæntir meðlimir hafi bæst við fjölskylduna.
Við myndskeiðis sem Johnson birti var eftirfarandi texti: „Ég skrepp í burtu í þriggja daga viðskiptaferð og þegar ég kem til baka mæta mér tveir nýir og óvæntir fjölskyldumeðlimir 🤔 (hinn er að fela sig í búrinu sínu)
„Poco“, hárlausi naggrísinn sem við vorum að taka að okkur frá Humane Society, er með “crackhead zoomies” í nýju þrautabrautinni sinni sem stelpurnar gerðu fyrir hann.
Þeir éta og kúka.
Allan daginn.
Alla daga.
Að eilífu.
Alveg. Frábært. 😂“
View this post on Instagram