- Auglýsing -
Glamúrskvísan Birgitta Líf Björnsdóttir á einn krúttlegasta hvutta landsins.
Skemmtistaðaeigandinn og meðlimur LXS-hópsins, Birgitta Líf Björnsdóttir er með vinsælan Instagram-reikning þar sem hún er dugleg að birta ljósmyndir af sjálfri sér. Hún brá þó út af vananum nýlega og birti ljósmyndir af hundinum sínum sem er eitt það allra krúttlegasta sem fyrirfinnst á landinu, þótt víðar væri leitað, miðað við þessar skemmtilegu ljósmyndir. Við myndirnar skrifaði hún: „pretty boy bossi“. Dásemdina má skoða hér að neðan.