Bríet Ísis Elfar söngkona birti sjóðandi heita ljósmynd af sér á Instagram sem hátt á annað þúsund manns hefur líkað við. Tilefnið er 24 ára afmæli hennar eftir viku.
Á þennan hátt auglýsir söngkonan vinsæla afmælisafslátt á vörum hennar í vefverslun hennar á briet.store. „BIRTHDAYWEEK! 24% afsláttur á öllum vörum frá 17-24 mars þvi gamla verður TUTTUGUOGFJAGRAAA næsta mið 🫂🫂🫂🫂🫂🫂🫂🫂🫂🫂🫂🫂 ILoveYou,“ skrifar Bríet við ljósmyndina.
Fjöldi manns hefur skrifað athugasemdir við myndina og eru allir á einu máli um að hún sé afar vel heppnuð. Enginn annar en listasérfræðingur Íslands, Goddur, tjáði sig undir myndina: „Besta myndin… so far“. Layla nokkur skrifaði einnig athugasemd og rímaði hún við flestar aðrar athugasemdir aðdáenda söngkonunnar glæsilegu: „Þú ert einfaldlega flottust“.