Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason upplýsti í hlaðvarpi sínu, Brotkast, að sú umdeilda Edda Falak hefur aldrei starfað í fjárfestingabanka, stóru lyfjafyrirtæki eða höndlað með verðbréf, eins og hún hefur haldið fram. Edda nýtur þjóðarathygli fyrir viðtöl sín.
Frosti hefur lagt vinnu í að kanna þessi mál og spurt umrædd fyrirtæki um störf Eddu sem bjó og starfaði um tíma í Kaupmannahöfn. Enginn kannast við verðbréfasalannn eða bankamanninn Eddu Falak. Hún hefur ekki vilja svara spurningum Mannlífs um það hvað sé að baki yfurlýsingum hennar.
Aftur á móti hefur fengist staðfest að í ferilsskrá hennar er hún starfaði við góðan orðstýr á ísbar í Kaupmannahöfn. Í Politiken birtist viðtal við Eddu þar sem hún hélt hátt á lofti gæðum íslenska skyrsins og styrk Íslendinga í handbolta. Í fyrirsögn blaðsins er hún kynnt sem Skyrkvinden fra Island, Skyrkonan frá Íslandi …