Inga Sæland kvartar undan ósmekklegum athugasemdum um Flokk fólksins á Facebook eftir að flokkurinn samþykkti hið umdeilda útlendingafrumvarp á Alþingi.
Illugi Jökulsson rithöfundur og fjölmiðlamaður birti í gær færslu á Facebook þar sem hann benti á að allir þingmenn Flokks fólksins hafi greitt atkvæði með útlendingafrumvarpi dómsmálaráðherra. Færslan vakti mikla athygli og fjölmargir hneiksluðust á flokknum í athugasemdum en þó nokkrir tóku upp hanskann fyrir flokkinn og töluðu um „útlendingavandann“ án þess þó að fara mjög náið í útskýringar á honum. Langflestar athugasemdirnar voru málefnalegar en inn á milli mátti sjá ósmekklegheit.
Inga Sæland, formaður flokksins er ekki ánægð með athugasemdirnar við færslu Illuga og bendir á þær í eigin færslu á Facebook. Talar hún þar um „góða fólkið“ sem vilji „takmarkalaust flæði fólks til landsins“.
„Endilega kíkið á síðu Illuga og sjáið athugasemdirnar og smekklegheitin sem þar eru sett fram undir Flokk fólksins sem greiddi atkvæði með útlendingafrumvarpinu ásamt 32 öðrum þingmönnum. s.s 38 þingmenn í 5 þingflokkum studdu frumvarpið gegn 15 atkvæðum Viðreisnar , Pírata og Samfylkingar. Flokkanna sem vilja takmarkalaust flæði fólks til landsins hvort heldur við getum annað því eða ekki. Það virðist algjört aukaatriði hjá „góða fólkinu“.“