Lögregla var kölluð út í Langholtshverfi rétt eftir klukkan sex í gærkvöld en ekið hafði verið á barn á reiðhjóli. Sem betur fer slasaðist barnið ekki við óhappið. Síðar um kvöldið varð umferðarslys á Suðurlandsvegi við Heiðmörk þegar jeppi missti framhjól undan bifreiðinni. Hjólbarðinn kastaðist á aðra bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Bifreiðin skemmdist mikið og þurfti dráttarbifreið til þess að fjarlægja hana af vettvangi. Engin slys urðu á fólki.
Um miðnætti handtók lögregla karlmann sem er grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Hann var sviptur ökuréttindum og látinn laus að lokinni sýnatöku. Í Vesturbænum var lögregla kölluð út laust eftir klukkan eitt í nótt. Þar hafði ökumaður ekið á tvær kyrrstæðar bifreiðar með þeim afleiðingum að hann slasaðist. Enginn var í kyrrstæðu bifreiðunum en maðurinn var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar. Þá sinnti lögregla reglubundnu umferðareftirliti.