- Auglýsing -
Tónlistarmaðurinn Jónas Sig býður upp á tónleikaröð daganna 21.-24. ágúst í Fjarðarborg á Borgarfirði eystri. Ein plata verður flutt á kvöldi í fjögur kvöld.
Jónas segir að á hverjum tónleikum muni bandið taka fyrir ákveðna plötu, segja sögur og rifja upp góðar minningar tengdar lögunum. Hljómsveitina skipa sem fyrr: Ómar Guðjónsson, Arnar Gíslason, Guðni Finnsson og Tómas Jónsson. Líklega munu fleiri gestir koma við sögu enda stemningin í Fjarðarborg þannig að allt getur gerst þegar hitnar í kolunum.
„Það er einhver einstakur galdur sem verður til með endurteknu tónleikahaldi sem stendur yfir nokkra daga í röð. Hvað þá þegar slíkt fer fram á sólbjörtum sumarkvöldum í Fjarðarborg,“ segir hann. Miðasalan er hafin á midi.is og takmarkað magn miða í boði.