- Auglýsing -
Hið sjórekna lík sem fannst í fjörunni við Fitjar í Reykjanesbæ á sunnudag er af Stefáni Arnari Gunnarssyni. Þann 3. mars lýsti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu eftir honum og hófst þá mikil leit að Stefáni þar sem um 150 björgunarsveitarmenn, slökkviliðsmenn, lögreglumenn og starfsmenn Landhelgisgæslunnar tóku þátt er mest lét. Rúv segir frá fundinum.
Stefán Arnar var 44 ára gamall og var kennari í Kópavogsskóla og fékkst einnig við handboltaþjálfun. Stefán bjó í Hafnarfirði þegar hann hvarf. Hann var barnlaus.