Sverrir Þór Sverrisson, öðru nafni Sveddi Tönn, er á meðal umtöluðustu Íslendinga í dag eftir að hann var handtekinn sem einn af meintum höfuðpaurum í risastóru fíkiefnamáli í Brasilíu.
Sverrir Þór var þekktur sem sölumaður og innflytjandi fíkniefna á árum áður. Hann hefur ekki verið mikið gefinn fyrir sviðsljósið í gegnum tíðna, af skiljanlegum ástæðum. Undantekning varð frá þessu þegar Viktoría Hermannsdóttir, þáverandi blaðamaður DV, náði viðtali við hann árið 2012 þar sem hann var innilokaður í fangaklefa í Suður-Ameríku. Viðtalið fór fram á Skype og þótti Sveddi vera hreinskilinn þegar hann lýsti aðstæðum sínum og kjörum. Viðtalið var í mynd og sýndi Sveddi aðsbúnað sinn í fangaklefanum. Eftir þetta hefur hann að mestu starfað í kyrrþey þar til nú að viðskipti hans eru í uppnámi. Viðurnefni sitt Tönn fékk hann vegna þess að hann var með einskonar innplant, tönn með vír, sem gekk upp í tannbeinið. Hann átti það til að kippa tönninni út úr sér og stinga henni svo aftur á sama stað með nokkrum tilþrifum ….