- Auglýsing -
Í kvöld, föstudaginn 17. maí, verða sannkallaðir kósí tónleikar á Cafe Flóru þar sem Bríet ásamt vel völdum aðilum munu koma fram og spila fallega tóna.
Bríet mun aðeins fara yfir árið sitt og tala um ferlið sem átti sér stað frá því hún spilaði á Íslenska barnum til dagsins í dag. Lög Bríetar verða spiluð í nýjum búningum og óútgefið efni frumflutt á tónleikunum, en húsið verður opnað klukkan 21.
Miðasala er núna í fullum gangi á Tix.is, einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn.